Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan

Afţreying

Ćfingar hefjast ađ nýju!

27. október 2007 klukkan 00:27

Jæja stelpur þá er að taka fram takkaskóna að nýju því það eru að hefjast æfingar í Fjarðabyggðarhöllinni......

Æfingarnar verða á Sunnudögum kl: 18 og Fimmtudögum kl: 19.45
(byrja sunnudaginn 28.október)

Þetta eru sameiginlegar æfingar með Leikni Fásk og vonum við að sem flestar sjái sér fært að mæta þ.e. þessar fáu sem eftir eru í sveitinni...

Eftirfarandi grein er tekin af KFF síðunni:

,,KFF og Leiknir sameinast

Stjórnir KFF og Leiknis Fáskrúðsfirði hafa ákveðið að hefja samstarf um meistaraflokk kvenna. Liðin munu æfa saman núna í vetur undir stjórn Viðars Jónssonar sem var að þjálfa kvenna lið Leiknis síðasta sumar. Mun Viðar taka þetta að sér í það minnsta fram að áramótum og vonandi lengur og kannski út næsta tímabil. Þetta er fyrsta skrefið í þá átt að sameina þessi lið og er það von okkar sem að þessari sameiningu stöndum að við fáum jákvæð viðbrögð og að fólk gefi þessu séns. Við hjá KFF trúum því að með þessari sameiningu munum við sjá öflugt og skemmtilegt lið í 1. deildinni næsta sumar."

LOKAHÓF

27. september 2007 klukkan 11:00


Þá er það klárt að lokahófið verður haldið í Egilsbúð föstudaginn 28. september og opnar húsið kl. 20.

Haukur og Varði hafa séð um að skipuleggja fagnaðinn og stefnir í skemmtilegt kvöld í Egilsbúð

Ætla ekki allar að mæta?

LOKAHÓFIĐ...

11. september 2007 klukkan 13:20
Halló stelpur

Hvað segiði ætla ekki allra að koma á lokahófið?

og þær sem vita hvort er það 28 eða 29 sept?

Við Inga Bryndís erum að skoða það að koma, þannig að hverjar ætla að mæta..???

Kv. Sigga á vatninu...

Allt tekur enda...

20. ágúst 2007 klukkan 17:17
Sælar allar og takk fyrir síðast
Lokahófið var bara ljómandi fínt. Vildi bara þakka enn og aftur fyrir mig og óska ykkur öllum góðs gengis í því sem við tekur í vetur. Ef þið saknið mín ægilega, sem ég tel mjög líklegt, þá er ekkert að gera annað en að kíkja í kaffi þegar þið eruð í rvk.
Bestu kveðjur,
Halla

Hittingur fyrir leik

19. ágúst 2007 klukkan 09:47
Þetta kemur svolítið sein inn á síðuna, en ég er bara að láta vita af því að það er hittingur heima hjá Hafrúnu klukkan 11:30 fyrir leikinn í dag. Þar ætla mamma og pabbi hennar að gefa okkur pasta að borða =)

Eftir pastað ætlum við að rölta/keyra niður á völl og taka myndir af þessu fallega  liði okkar í búningunumSvalur


Sjáumst eftir smá ...

Guðbjörg

p.s. Það er þoka

Sólarhringsfrestun !

15. ágúst 2007 klukkan 17:00
Eins og þið örugglega vitið þá var leiknum frestað í kvöld og á að hafa hann
 á morgunn á sama tíma. Öll áætlun færist bara yfir á morgunndaginn og lagt
verður af stað frá Neskaupstað kl. 14:00.
Stefnan er að fara á rútu, en ef það klikkar þá verðum við að fara á einkabílum!

Varðandi lokahófið þá er það þannig að stjórnin okkar (Þorgerður, Arnar og Siggi) eru svo frábær að þau eru bara búin að sjá um þetta fyrir okkur, þau eru búin að redda húsnæði, ætla að versla inn fyrir okkur og grilla fyrir okkur ... Svalur
Við ræðum þetta síðan frekar á leiðinni á leikinn á morgunn.

Við sjáumst bara í sigurstuði á morgunn og mössum þetta helv... Afsakið ... Sindralið
Ullandi

Bæjó Spæjó ...
Guðbjörg

3 ćfingar, tveir leikir

14. ágúst 2007 klukkan 13:03
Heilar og sælar
Á æfingu í gær var tekin lýðræðisleg ákvörðun um að klára tímabilið með stæl. Ég vek athygli á því að nú eru aðeins eftir þrjár æfingar og tveir leikir. Leggjumst allar á eitt og klárum þetta með krafti!
Við höfum líka skipað lýðræðislega skemmtinefnd til að vera skemmtileg á lokahófinu okkar. Hins vegar erum við enn að væflast með staðsetningu fyrir hófið. Sumarbústaður er ofarlega á óskalistanum og ef þið eruð með einhver sambönd endilega látið vita. Ég get ímyndað mér að margir bústaðir standi auðir á sunnudögum hvort eð er!
Sjáumst á æfingu í kvöld.
Halla

Á nćstunni

11. ágúst 2007 klukkan 10:51

Jæja stelpur, ekki er hægt að segja að það hafi verið góð mæting á æfingu í gær, en við mættum þrjár =(
það verða engar æfingar um helgina. Næsta æfing verður á mánudaginn klukkan 18:30 á Neskaupstað.
Reynum nú að mæta allar og hafa gaman af því litla sem eftir er af fótboltanum í sumar Svalur
Við ætlum líka að ræða komandi lokahóf sem við stefnum á að halda daginn sem völsungsleikurinn er, þannig að það er frábært að sem flestar mæta svo það séu allir sem taka þátt í skipulagningunni.


Annað ...

Ég er ekki alveg klár á því hverjir eru að fara að rukka inn á leikinn í dag, en ég get það því miður ekki því ég er að vinna Óákveðinn
Ég veit að það er stutt í leikinn en það væri ágætt að þær sem hafa tíma mæti og rukki inn og láti vita hér á síðunni =)

Sjáumst annars hressar á mánudaginn

Guðbjörg

Leikurinn viđ Leikni...

08. ágúst 2007 klukkan 14:21
Halló....

vildi bara láta vita afþví að ég er með búningana (ég sigga) og ég kem ekki yfir á Eskifjörð fyrir leikinn þannig að við Ragga förum frá RFJ og tökum búningana með okkur... og ef einhverjum rebba vantar far þá er pláss fyrir einn í mínum bíl..

KV. Sigríður....Svalur

Ćfing kvöldsins

07. ágúst 2007 klukkan 12:05
Æfingin í kvöld er á eskifirði 19:30. Takið endilega með ykkur sunddót og förum aðeins i pottinn e. æfingu, hún verður ca. klst.
Svo er það ekkert nema sigur á morgun!

Halla

Innskráningar kubbur